Konditorsamband Íslands

Félag faglærðra konditora og fyrirtækja í kökugerð á Íslandi

Konfektmolar pralineKonfektmolar praline vörurKonfektmolar framleiðslaKonfektmolar praline
Konditora við störf

Um félagið

Konditorsamband Íslands var stofnað árið 2012 með það að markmiði að efla fagmennsku, menntun og virðingu kökugerðar sem sjálfstæðrar iðngreinar. Félagið sameinar konditora og fyrirtæki sem starfa við kökugerð og vinnur að framgangi greinarinnar innanlands og á alþjóðavettvangi.

Lesa meira

Markmið og tilgangur

Sameining greinarinnar

Safna saman öllum konditorum og fyrirtækjum sem standa að rekstri konditori (kökugerða).

Menntun og þróun

Auka menntun, verkkunnáttu, virðingu og vöruvöndun í greininni.

Virðing og sérstaða

Undirstrika og berjast fyrir sérstöðu kökugerðar sem sjálfstæðrar iðngreinar.

Alþjóðlegt samstarf

Stuðla að virku alþjóðlegu samstarfi og þátttöku í keppnisliðum í samvinnu við aðrar matvælagreinar.

Fagleg starfsemi

Lög og starfsemi

Starfsemi félagsins byggir á samþykktum lögum sem fjalla um aðild, stjórn, aðalfundi, siðareglur og vernd félagamerkis. Lögin tryggja skipulag og faglegan ramma utan um starfsemi sambandsins.

Viltu vita meira?

Hefur þú áhuga á að gerast félagsmaður eða viltu fá frekari upplýsingar um starf Konditorsambandsins? Við hlökkum til að heyra frá þér.