
Meðlimir Konditorsamband Íslands áberandi á Debic námskeiði
Miðvikudaginn 13. mars síðastliðinn var haldið afar glæsilegt námskeið á vegum belgíska fyrirtækisins Debic. Námskeiðið fór fram í Hótel og matvælaskólanum í Kópavogi og var á vegum Iðunnar fræðsluseturs, Ekrunnar og Innbaks. Kennari á námskeiðinu var hinn frábæri belgíski konditor Bruno van Vaerenbergh.
Þátttakendur voru 18 fagmenn og voru konditorar frá Konditorsambandi Íslands mjög framarlega á námskeiðinu.
Námskeiðið hófst klukkan 10:00 um morguninn og var tvískipt. Fyrri hlutinn var í formi sýnikennslu og fór fram í sýningastofunni. Lagaði Bruno fjóra mismunandi tertur og eftirrétti, ásamt því að miðla úr viskubrunni sínum. Eftir hádegi var haldið í kökugerðina þar sem hópnum var skipt upp og löguðu allir hóparnir mismunandi uppskriftir hver. Stóð námskeiðið til klukkan 16:00 og var í alla staði til mikils sóma.
Skoða myndir frá námskeiðinu með því að smella hér en ljósmyndir tók Haraldur Guðjónsson.Facebook síða Bruno.Heimasíða Debic.