Sigurður Már Guðjónsson formaður Konditorsambandsins og fréttamaður hjá freistingu var á dögunum sæmdur heiðursmerki U.I.P.C.G. Er um mikinn heiður að ræða og ánægjulegt að íslenskur konditor sé heiðraður fyrir gott og óeigingjarnt starf í þágu fagsins af alþjóðlegum samtökum.
Sigurður Már hefur meðal annars átt frumkvæði að stofnun Konditorsambandsins og átt forgöngu að skipuleggja konditornámskeið á vegum Landsambands bakarameistara síðustu árin.