Konditormeistarar opna ísbúð

Veitingaþjónusta Lárusar Loftssonar
Önnu Konditorí sameinast við veitingaþjónustu Lárusar Loftssonar
06.03.2017
Hrafnhildur Anna Kroknes Sigurðardóttir
Hrafnhildur lauk sveinsprófi í konditori með ROS
15.05.2017
Sýna allt

Konditormeistarar opna ísbúð

Skúbb

Viggó og Hjalti kíktu í heimsókn á Neðri-Háls í Kjós að skoða fjósið, en Neðri-Háls er eitt að tveimur lífrænum mjólkurbúum sem Skúbb mun fá mjólkina frá.

Skúbb Ísgerð opnar á næstu dögum að Laugarásvegi 1 í Reykjavík.  Það eru félagarnir Karl Viggó Vigfússon konditor og bakari, Hjalti Lýðsson súkkulaðigerðamaður og konditor og Friðrik Haraldsson viðskiptafræðingur sem standa á bak við ísbúðina.  Friðrik er einn af eigendum The Laundromat Café í Austurstræti, en nýlega seldi hann hlut sinn í brugghúsinu Bryggjan við Grandagarð 8.

“Þegar við hjá SKÚBB veljum að gera sorbet, lakkrís eða silkimjúkan vanilluís með þúsundir ósvikina vanillukorna, gerum við engar málamiðlanir þegar það kemur að vali að hráefni.”

, segir í tilkynningu á facebook síðu Skúbb.

Skúbb

Frá framkvæmdum, 16. apríl s.l.

“Hugmyndin af Skúbb er að gera ís sem er gerður frá grunni með bestu vörum sem völ er á og velja alltaf lífrænt ef hægt er.  Ef við eru erum með jarðaberjaís á boðstólnum þá er hann gerður úr jarðaberjum enda eru við Hjalti báðir Konditorar og við vitum að val á hráefni er ákaflega mikilvægt.

, segir Karl Viggó í samtali við Morgunblaðið.