Axel Þorsteinsson konditor sigraði Kahlúa kökukeppnina

Makkarónur
Kökugerð bjargað af aftökulista Iðnaðarráðuneytisins – Loks fullgild iðngrein á Íslandi
18.01.2016
Helgi Steinar Karlsson og Sigurður Már Guðjónsson
Sérhagsmunasamtökin
20.05.2016
Sýna allt

Axel Þorsteinsson konditor sigraði Kahlúa kökukeppnina

Axel Þorsteinsson bakari & konditor

Íslensk Ameríska og Mekka Wines & Spirits blésu til vörusýningar á Hilton síðast dag vetrar í síðustu viku.

Á sama tíma fór fram Kahlúa kökukeppnin sem hefur notið mikilla vinsælda á meðal bakara landsins unanfarin ár.  Það eru Puratos og Kahlúa sem standa á bak við þessa keppni og þurfa keppendur þar af leiðandi að notast við hluta úr uppskrift af vörum frá Puratos og svo hinum silkimjúka kaffilíkjör Kahlúa.

Tæplega 30 galvaskir keppendur tóku þátt og algjörlega magnaðar kökur litu dagsins ljós.

Dómarar keppninnar þetta árið voru þau Jóhannes Baldursson bakari og stórtenór, Ylfa Helgadóttir matreiðslumaður og Yesmine Olson matgæðingur.

Var það samróma álit dómara að kökurnar hefur heilt yfir verið fallegar og mjög bragðgóðar.

Hlutskarpastur að þessu sinni var Axel Þorsteinsson bakari & konditor frá Apótekinu, í öðru sæti var Jón Anton Bergsson frá Kruðerí og svo í þriðja sæti var Júlía Stuefer frá Sandholt.

Á vef veitingageirans er hægt að skoða myndir af vinningskökunum sem og fleiri myndir frá viðburðinum með því að smella hér.

Mynd: Ómar Vilhelmsson.